
Íslensk-ameríska
félagið sem stofnað var 1940, er eins og
sambærileg félög á Norðurlöndum systurfélag
American Scandinavian Foundation. Félögin starfa
að því að efla samstarf þjóða sinna og
Bandaríkjanna í mennta- og menningarmálum í
samvinnu við American Scandinavian Foundation.
Eftir stofnun félagsins á styrjaldarárunum hófust
námsdvalir Íslendinga á háskólum og öðrum
menntastofnunum í Bandaríkjunum sem ætíð hafa haft
mikla þýðingu.
Við fráfall Thor Thors, sendiherra, sem hafði
verið einn af stofnendum félagsins, var ákveðið að
efla átakið í þágu menntamanna með stofnun sjóðs
til minningar um hann. Umsjá og starf við Thor
Thors sjóðinn hefur síðan verið eitt af
aðalverkefnum félagsins.
Íslensk-ameríska félagið var á sínum tíma mjög
öflugur aðili í samkvæmis- og skemmtanalífi
Reykvíkinga. Haldnar voru fjölmennar hátíðir með
dansleikjum á Thanksgiving Day og að öðru tilefni
á vetrum og vori. Slík starfsemi hefur nú lagst af
hjá þessu félagi og öðrum sambærilegum í
höfuðborginni og því þurft að finna nýjan vettvang
starfs eða framlag við þjóðfélagið. |